Saksóknari á Spáni krefst tveggja og hálfs árs dóms yfir Luis Rubiales, fyrrverandi forseta spænska knattspyrnusambandsins. Rubiales vakti mikla hneykslan þegar hann kyssti Jennifer Hermoso, leikmann spænska kvennalandsliðsins, á munninn í kjölfar þess að liðið tryggði sér sigur á HM í fyrrasumar
Saksóknari á Spáni krefst tveggja og hálfs árs dóms yfir Luis Rubiales, fyrrverandi forseta spænska knattspyrnusambandsins. Rubiales vakti mikla hneykslan þegar hann kyssti Jennifer Hermoso, leikmann spænska kvennalandsliðsins, á munninn í kjölfar þess að liðið tryggði sér sigur á HM í fyrrasumar. Samkvæmt spænskum lögum getur óvelkominn koss flokkast sem kynferðisleg áreitni. Viðurlögin við broti af þessu tagi eru allt að þriggja ára fangelsisvist.