— Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum fyrir orkuvinnslu. Snéri dómurinn þar með við ákvörðun Héraðsdóms Austurlands sem hafði staðfest friðlýsinguna. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi umhverfis- og…

Hæstiréttur hefur fellt úr gildi friðlýsingu vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum fyrir orkuvinnslu. Snéri dómurinn þar með við ákvörðun Héraðsdóms Austurlands sem hafði staðfest friðlýsinguna.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, þáverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, tilkynnti um friðlýsingu svæðisins árið 2019.

Landeigendur Brúar 1 og Brúar 2 í Múlaþingi áfrýjuðu ákvörðuninni en virkjunarkostir eru á svæðinu og hafa Arnardalsvirkjun og Helmingsvirkjun verið nefndar í því samhengi. Báðir kostir hafa verið í verndarflokki samkvæmt rammaáætlun frá árinu 2013.

Í dómi Hæstaréttar segir að gengið hafi verið á lögvarða hagsmuni þeirra sem eiga vatnsréttindi á svæðinu og var friðlýsingin dæmd ógild.

Hins vegar er ekki fallist á kröfu landeigenda um að Guðmundur Ingi hefði verið vanhæfur sökum þess að hann var formaður Landverndar skömmu áður en ákvörðun var tekin um friðlýsingu.