Sigurbjörn Þorkelsson
Kærleikans Guð gefi okkur af náð sinni að standa saman og halda áfram veginn til góðs í bæn. Full af bjartsýni, von og trú á lífið.
Bænir, hlýtt viðmót, skilningur og samstaða skipta svo miklu máli í mannlegum samskiptum og á ferð okkar um ævinnar veg til að okkur líði vel og við verðum áreynslulaus og farsæl í samskiptum.
Hvílum í stundinni og njótum hennar í þakklæti, því lífið er ljóðasafn. Sjáum með hjartanu og föðmumst því við eigum aðeins eitt líf og það heldur áfram. Jafnvel þótt það kunni að reynast svalt á köflum.
Já, njótum stundarinnar, alla ævi. Lifum í meðvitaðri sítengingu við lífið, af ástríðu í fylgd frelsarans um eilífð.
Hvílum í undri kærleikans. Náðarfaðmi frelsarans Jesú Krists og lifum í von og gleði, þakklæti og raunverulegri hamingju, því okkur hefur verið tileinkaður sigur lífsins. Gleðilega upprisuhátíð. Gleðilega páska, alla daga.
Með vonarríkri kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.