Rithöfundurinn Þórunn Valdimarsdóttir hefur gefið út fjölda bóka.
Rithöfundurinn Þórunn Valdimarsdóttir hefur gefið út fjölda bóka.
Heimildarmyndin Lífið er helgileikur um rithöfundinn og sagnfræðinginn Þórunni Valdimarsdóttur verður sýnd í Ríkissjónvarpinu á annan í páskum kl. 20.10. Þar tekur Arthúr Björgvin Bollason Þórunni tali auk þess sem vinir hennar og samferðafólk segja …

Heimildarmyndin Lífið er helgileikur um rithöfundinn og sagnfræðinginn Þórunni Valdimarsdóttur verður sýnd í Ríkissjónvarpinu á annan í páskum kl. 20.10. Þar tekur Arthúr Björgvin Bollason Þórunni tali auk þess sem vinir hennar og samferðafólk segja frá kynnum sínum af henni. Farið er yfir feril hennar sem rithöfundur í myndinni og rætt um ljóð hennar, skáldverk og sagnfræðirit. Um kvikmyndastjórn sér Jón Egill Bergþórsson.