Tryllir Kvikmyndin The Talented Mr. Ripley naut gríðarlegrar lýðhylli fyrir aldarfjórðungi. Nú er sama persóna, Tom Ripley, í forgrunni í nýjum spennumyndaflokki á Netflix sem kallast einfaldlega Ripley
Tryllir Kvikmyndin The Talented Mr. Ripley naut gríðarlegrar lýðhylli fyrir aldarfjórðungi. Nú er sama persóna, Tom Ripley, í forgrunni í nýjum spennumyndaflokki á Netflix sem kallast einfaldlega Ripley. Líkt og myndin byggist hann á skáldsögum Patriciu Highsmith um Ripley frá sjötta áratugnum en þær voru fimm talsins. Andrew Scott fer með titilhlutverkið en af öðrum leikurum má nefna Johnny Flynn, Dakotu Fanning og John gamla Malkovic en leikstjóri er Steven Zaillian. Ripley má nálgast á Netflix frá og með 4. apríl.