Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Það er tímabært að hressa upp á innilaugina,“ segir Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, formaður umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar. Lögð hefur verið fram tillaga að breytingum og endurbótum á innisundlauginni í Sundlaug Akureyrar.
Bæði er um að ræða breytingar innandyra og utanhúss. Innilaugin er í kjallara gamla sundlaugarhússins og snýr niður að svonefndum andapolli. Sundlaug Akureyrar er með vinsælustu og fjölsóttustu sundlaugum landsins.
Brynja Hlíf fer sjálf í laugina en þar er m.a. boðið upp á bæði ungbarna- og krakkasund sem hún hefur sótt með sínum dætrum. „Það er öllum ljóst sem þangað koma að tími er kominn á viðhald, “ segir hún.
Tillagan var kynnt á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs og segir Brynja Hlíf að enn hafi ekki verið tekin nein ákvörðun um framhaldið.
„Þetta er flott og metnaðarfull hönnun sem mér líst vel á en við eigum eftir að fara betur yfir kostnað og tímaramma áður en við getum ákveðið að fara í þetta verkefni,“ segir Brynja Hlíf.
Meðal breytinga sem fram koma í tillögu sem Ágúst Hafsteinsson arkitekt vann er að sagað verði niður úr öllum gluggum á austurveggnum. Þannig verður rýmið opnara og bjartara með útisýni yfir andapollinn. Tillagan gerir einnig ráð fyrir að sagað verði ofan af háum köntum umhverfis laugina og nýjum yfirfallsrennum komið fyrir í staðinn.
Glerveggur á austurhliðinni
Svæðið undir núverandi útigöngubrú verði afmarkað með glervegg og nýtt gólf steypt. Þá verði steyptur nýr rampur fyrir fatlaða í nýtt stækkað svæði undir núverandi útigöngubrú. Gert er ráð fyrir að nýjar útitröppur verði gerðar niður með austurhliðinni.
Þá má loks nefna að allt svæðið verður flísalagt upp á nýtt og núverandi stigauppganga úr lauginni og upp á næstu hæð endurnýjuð. Allt rafmagn verður einnig endurnýjað sem og lýsing og loftræsting.