Jón Gnarr
Jón Gnarr
Jón Gnarr tilkynnti framboð sitt til forseta Íslands í myndbandi á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöldi. Í tilkynningunni segir hann að frá áramótum hafi fjöldi fólks skorað á hann að gefa kost á sér. Hann hafi ákveðið að taka þessari áskorun með mikilli auðmýkt, þakklæti og mjúku hjarta

Jón Gnarr tilkynnti framboð sitt til forseta Íslands í myndbandi á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöldi.

Í tilkynningunni segir hann að frá áramótum hafi fjöldi fólks skorað á hann að gefa kost á sér. Hann hafi ákveðið að taka þessari áskorun með mikilli auðmýkt, þakklæti og mjúku hjarta.

Jón segist í ávarpi sínu hafa margt fram að færa sem hann viti að skiptir máli.

„Ef þjóðin kýs mig til verksins mun ég taka því af mikilli alvöru og leggja mig allan fram um að láta gott af mér leiða í öllu því er varðar heill og hamingju þjóðarinnar,“ segir Jón.