Mikkel Hansen, einn besti handboltamaður heims um árabil, mun tilkynna formlega í dag að hann leggi skóna á hilluna eftir þetta tímabil, samkvæmt frétt TV2 í Danmörku. Hann lýkur tímabilinu með Aalborg sem er í baráttu um danska meistaratitilinn
Mikkel Hansen, einn besti handboltamaður heims um árabil, mun tilkynna formlega í dag að hann leggi skóna á hilluna eftir þetta tímabil, samkvæmt frétt TV2 í Danmörku. Hann lýkur tímabilinu með Aalborg sem er í baráttu um danska meistaratitilinn. Hansen er 36 ára og hefur m.a. þrisvar orðið heimsmeistari með danska landsliðinu, Evrópu- og Ólympíumeistari, en hann lék áður með GOG, Barcelona, AG Köbenhavn og París SG.