Systkini Sólveig, Stefán og Samúel Ívar Árnabörn stofnuðu sjóðinn.
Systkini Sólveig, Stefán og Samúel Ívar Árnabörn stofnuðu sjóðinn. — xaxaaxaxaax
Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara, sem lést 3. mars 2023, var stofnaður í gær. Það eru systkini Arnars sem standa að sjóðnum, en fyrir ári fannst Arnar látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ

Minningarsjóður um Arnar Gunnarsson, kennara og handknattleiksþjálfara, sem lést 3. mars 2023, var stofnaður í gær. Það eru systkini Arnars sem standa að sjóðnum, en fyrir ári fannst Arnar látinn í fjöruborðinu við Fitjabraut í Reykjanesbæ.

„Við erum bæði stolt og hrærð á þessum degi þegar minningarsjóðurinn um Adda bróður er stofnaður honum til heiðurs. Höldum við þannig minningunni á lofti um góðan dreng og hans störf í þágu handboltans,“ segir Samúel Ívar Árnason, bróðir Arnars.

Sjóðnum er ætlað að styðja við unga og efnilega handboltaiðkendur sem stefna hátt, sem og að auka fræðslu til foreldra og forráðamanna barna í íþróttum.

Sjóðurinn hefur sömuleiðis þann tilgang að heiðra minningu Arnars. Hægt er að leggja inn frjáls framlög á reikning hjá Sparisjóði Höfðhverfinga þar sem Arnar var viðskiptavinur um árabil, segir í tilkynningu.

Minningarsjóður um Adda, er heiti sjóðsins, reikningur 1187 05 255000, kennitala 6503241450.