— Morgunblaðið/Árni Sæberg
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Útför Matthíasar Johannessen, skálds og fv. ritstjóra Morgunblaðsins til rúmlega fjögurra áratuga, var í gær gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Líkmenn voru: Fremstir, Haraldur og Ingólfur, synir Matthíasar

Útför Matthíasar Johannessen, skálds og fv. ritstjóra Morgunblaðsins til rúmlega fjögurra áratuga, var í gær gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Líkmenn voru: Fremstir, Haraldur og Ingólfur, synir Matthíasar. Því næst koma börn Haraldar: Í miðjunni hvor sínum megin kistunnar, systurnar Anna og Svava og aftastir bræðurnir Matthías og Kristján.

Séra Sveinn Valgeirsson þjónaði, organisti var Guðmundur Sigurðsson, einleikari á gítar var Pétur Jónasson, sellóleikari var Bryndís Halla Gylfadóttir, einsöngvari Gissur Páll Gissurarson og kór Voces Masculorum söng.

Gissur söng lagið Hanna, við lag eftir Pál Ísólfsson, og lögin Úr veglausu hafi og Moldhlý er jörðin eftir Atla Heimi Sveinsson, en textarnir eru eftir Matthías Johannessen.

Minningarorð voru flutt af Þresti Helgasyni og Ástráði Eysteinssyni.