Maður í New York.
Maður í New York.
Engan sakaði og ekki er vitað til að tjón hafi orðið þegar jarðskjálfti, 4,8 að stærð, reið yfir New York-borg í gær. „Það er allt í lagi með mig,“ sagði á X-aðgangi Empire State-byggingarinnar á Manhattan

Engan sakaði og ekki er vitað til að tjón hafi orðið þegar jarðskjálfti, 4,8 að stærð, reið yfir New York-borg í gær.

„Það er allt í lagi með mig,“ sagði á X-aðgangi Empire State-byggingarinnar á Manhattan. Háhýsi skulfu og gert var stutt hlé á fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem rætt var um stöðuna á Gasasvæðinu.

Jarðskjálftinn átti upptök sín í New Jersey. Jarðskjálftar eru sjaldgæfir á Atlantshafsströnd Bandaríkjanna en þar eru ekki virk flekaskil.