Hluti verks á sýningunni
Hluti verks á sýningunni
Samsýning 11 listamanna verður opnuð i dag kl. 14 í Gallerí Fold. Ber hún yfirskriftina Birta og sýnendur eru þau Bjarni Ólafur, Gísli Baldvin, Hrafnhildur Inga, Karl Jóhann, Margrét Laxness, Óskar Thorarensen, Pétur Gautur, Rósa Sigrún, Soffía…

Samsýning 11 listamanna verður opnuð i dag kl. 14 í Gallerí Fold. Ber hún yfirskriftina Birta og sýnendur eru þau Bjarni Ólafur, Gísli Baldvin, Hrafnhildur Inga, Karl Jóhann, Margrét Laxness, Óskar Thorarensen, Pétur Gautur, Rósa Sigrún, Soffía Sæmundsdóttir, Víðir Mýrmann og Þorgrímur Andri. Segir í tilkynningu að þau komi úr ólíkum áttum en komi saman á sýningunni undir formerkjum birtunnar og bjartari tíma.

Listamennirnir nálgast viðfangsefni sitt, birtuna, með ýmsum og ólíkum hætti og þá bæði í efnisvali og myndefni. Segir í tilkynningu að náttúran leiki stórt hlutverk í verkunum á sýningunni og þá ýmist í víðáttunni eða nærumhverfinu, í krafti eða kyrrð. Túlkun hvers sýnendanna sé persónuleg. Sýningunni lýkur 27. apríl.