Ian Hill hefur verið 55 ár í Priest.
Ian Hill hefur verið 55 ár í Priest. — AFP/Suzanne Cordeiro
Æska Ian gamli Hill, bassafantur Judas Priest, hefur aldrei tröllriðið fjölmiðlum með nærveru sinni en þá sjaldan hann tekur til máls þá leggja málmheimar við hlustir og fleiri heimar ættu líklega að gera það líka

Æska Ian gamli Hill, bassafantur Judas Priest, hefur aldrei tröllriðið fjölmiðlum með nærveru sinni en þá sjaldan hann tekur til máls þá leggja málmheimar við hlustir og fleiri heimar ættu líklega að gera það líka. Spurður um aldur sinn, hann er 72 ára, á miðlinum RiffX, svaraði Hill því til að hann væri ekki til trafala. „Enginn okkar [prestlinga] hegðar sér í samræmi við aldur, hér uppi [í höfðinu] er ég ekki nema 12 ára og það á við um Rob [Halford söngvara] líka. Það eru þrjár kynslóðir aðdáenda á tónleikum okkar og ég gæti verið afi sumra þeirra. En ég velti því ekkert fyrir mér.“