Freyja Steingrímsdóttir
Freyja Steingrímsdóttir
Gengið hefur verið frá ráðningu Freyju Steingrímsdóttur í starf framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og hefur hún störf í lok maí. Mun hún hafa umsjón með og bera ábyrgð á faglegu starfi á vettvangi félagsins, daglegum rekstri og…

Gengið hefur verið frá ráðningu Freyju Steingrímsdóttur í starf framkvæmdastjóra Blaðamannafélags Íslands (BÍ) og hefur hún störf í lok maí. Mun hún hafa umsjón með og bera ábyrgð á faglegu starfi á vettvangi félagsins, daglegum rekstri og áætlanagerð, sjá um stefnumótun í samráði við stjórn og koma fram fyrir hönd félagsins eftir því sem við á og gæta hagsmuna þess. Kemur þetta fram í tilkynningu frá BÍ.

Freyja er stjórnmálafræðingur að mennt og m.a. með reynslu af starfsemi annarra stéttarfélaga.