Kynningarmynd fyrir skart:grip
Kynningarmynd fyrir skart:grip
Sýningin skart:gripur – skúlptúr fyrir líkamann verður opnuð í dag, 6. apríl, kl. 15, í Sverrissal í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar má sjá gripi eftir fjölbreyttan hóp gullsmiða, skartgripahönnuða og listamanna sem varpa ljósi á skartið í samtíma…

Sýningin skart:gripur – skúlptúr fyrir líkamann verður opnuð í dag, 6. apríl, kl. 15, í Sverrissal í Hafnarborg í Hafnarfirði. Þar má sjá gripi eftir fjölbreyttan hóp gullsmiða, skartgripahönnuða og listamanna sem varpa ljósi á skartið í samtíma okkar, eins og segir í tilkynningu. Sýningin er sett upp í tengslum við hönnunarhátíðina HönnunarMars 2024. „Skartgripir gegna stöðu tungumáls í menningu okkar og samfélagi. Þeir eru frásögn, tákna stöðu, miðla persónuleika og senda skilaboð. Þá endurspeglar sýningin margbreytileika í efnistökum, aðferðum og nálgun í skartgripagerð hér á landi,“ segir m.a. í tilkynningu. Sýnendur eru Anna María Pitt, Arna Gná, Ágústa Arnardóttir, James Merry, Hildur Ýr Jónsdóttir, Helga Mogensen, Katla Karlsdóttir, Orr og Marta Staworowska. Sýningarstjóri er Brynhildur Pálsdóttir.