Verk á hörstriga.
Verk á hörstriga.
Guðmundur Thoroddsen opnar sýninguna Skriður í dag klukkan 17 í Þulu, Marshallhúsinu, en hún mun standa til 19. maí. Segir í tilkynningu að þar sýni Guðmundur ný málverk frá þessu ári þar sem hann haldi áfram áhugaverðum tilraunum sínum með olíustifti

Guðmundur Thoroddsen opnar sýninguna Skriður í dag klukkan 17 í Þulu, Marshallhúsinu, en hún mun standa til 19. maí. Segir í tilkynningu að þar sýni Guðmundur ný málverk frá þessu ári þar sem hann haldi áfram áhugaverðum tilraunum sínum með olíustifti. Þá séu öll verkin unnin á hörstriga með olíulit og olíustiftum, sem hann blandi og búi til sjálfur, þar sem listamaðurinn láti lit og áferð stiftisins leiða sig áfram fremur en að hafa ákveðið myndefni í huga.