Lulu er nú á sinni seinustu tónleikaferð.
Lulu er nú á sinni seinustu tónleikaferð. — AFP/Mark Von Holden
Þögn Skoska söngkonan Lulu upplýsir í samtali við vefsíðu BBC að hún taki aldrei til máls fyrr en í fyrsta lagi klukkan tólf á hádegi. „Ég skil vel að þið haldið að ég sé að skrökva en svo er ekki. Ég er mjög öguð,“ segir hún

Þögn Skoska söngkonan Lulu upplýsir í samtali við vefsíðu BBC að hún taki aldrei til máls fyrr en í fyrsta lagi klukkan tólf á hádegi. „Ég skil vel að þið haldið að ég sé að skrökva en svo er ekki. Ég er mjög öguð,“ segir hún. Þetta á sérstaklega við meðan söngkonan er á túr, það er tónleikaferðalagi. Hún hvíslar ekki einu sinni, hvað þá kallar fyrr en eftir þann tíma dags. „Ég reyni að koma ekki fram úr herberginu mínu fyrr en klukkan 12. Það gerir þetta auðveldara og hjálpar mér að verja hljóðfærið mitt og gerir mér kleift að syngja.“