Þorkell Sigurlaugsson
Þorkell Sigurlaugsson
Við erum enn villt í skógi ófjármagnaðra og óframkvæmanlegra hugmynda í samgöngumálum í Reykjavík. Munu Betri samgöngur ohf. geta staðið undir nafni?

Þorkell Sigurlaugsson

Við Reykvíkingar upplifum nú breytingar úr „borginni sem var“ í „borgina sem enginn veit hvernig verður“. Hvort sem litið er til samgöngumála eða skipulagsmála þá er unnið að róttækum breytingum, boðið upp á óvissuferð þar sem íbúar eiga bara að fylgja með.

Nær engar úrbætur hafa orðið á gatnakerfinu síðustu 15 árin. Ástandið er óbærilegt og mun bara versna. Allt er gert til að hægja á og tefja umferð ökutækja, þar með strætó, fækka bílastæðum og hækka bílastæðagjöld óhóflega. Tilkostnaður fólks og fyrirtækja eykst um tugi milljarða á ári vegna umferðartafa og dregur úr frelsi og lífsgæðum. Verið er að veikja samkeppnisstöðu sem greiðfær og hagkvæm borg. Bæta þarf þjónustu strætó verulega, en þakka má fyrir miklar úrbætur fyrir gangandi og hjólandi.

Gallaður samgöngusáttmáli

Vonir voru bundnar við „sáttmála um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu milli ríkis og sveitarfélaga“ frá 26.9. 2019. Fljótlega komu gallar og vanáætlanir í ljós, en mikil þöggun og meðvirkni var samt framan af, t.d. í aðdraganda borgarstjórnarkosninga vorið 2022.

Þöggunin var loksins rofin 16. mars í fyrra, þegar Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, hélt fjölmennan fund um samgöngusáttmálann. Vilhjálmur Árnason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, ritari hans og þáverandi formaður umhverfis- og samgöngunefndar alþingis, upplifði að allir sem tjáðu sig lýstu miklum efasemdum um verkefnið og að endurmeta þyrfti sáttmálann.

Gallarnir upp á yfirborðið

Í Morgunblaðinu strax eftir fundinn birti Morgunblaðið áhyggjur Vilhjálms af sáttmálanum. Þar rifjaði hann upp athugasemdir við endurskoðun verkefnisins sem átti að ljúka um mitt ár eða haustið 2023 en er ekki enn lokið. Í fyrsta lagi er stjórnskipun sáttmálans flókin og skapar upplýsingaóreiðu. Í öðru lagi eru fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga óljós. Í þriðja lagi þarf að uppfæra allar áætlanir hvað varðar fjárfestingar og fyrirhugaðar framkvæmdir.

Vegagerðin sá vandann fljótlega og framkvæmdum frestað og kallað eftir endurskoðun sáttmálans. „Óvæntir“ hlutir komu í ljós; kostnaðarsamur stokkur við Sæbraut; óframkvæmanlegur stokkur við Miklubraut, arfavitlaus miðjusetning strætólínu (kölluð borgarlína) á nokkrum stöðum samhliða helmingsfækkun almennra akreina, lokun gatna í miðborginni og gríðarlega hár kostnaður við Fossvogsbrú. Hugmyndir um venjulega brú geta aftur á móti verið skynsamar fyrir Kársnes, fjölmennt Vatnsmýrarsvæðið o.fl.

„Skógi ófjármagnaðra hugmynda“ plantað

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, lýsti því í hvassri grein í Morgunblaðinu 8. september sl. að við værum að „villast inn í skóg ófjármagnaðra hugmynda“ eins og hann orðaði það í fyrirsögn.

Garðyrkjumennirnir sem vinna við verkefnið, svo áfram sé notuð þessi samlíking, eru allir týndir í skóginum í sínum verkefnum og taka þátt í þögguninni svo þeir fái ekki borgarstjórnarvaldið gegn sér. Þrátt fyrir „skóg ófjármagnaðra hugmynda“ hefur alþingi ekki enn komið að málinu, sem vekur furðu í ljósi hækkunar á áætluðum verkkostnaði úr 120 milljörðum í 300 milljarða króna.

Standa ekki undir nafni

Opinbera hlutafélagið Betri samgöngur ohf. (BS) var stofnað árið 2020 til að hafa umsjón með og stjórna framgangi samgöngusáttmálans. Formaður og framkvæmdastjóri hins nýja félags voru ekki þekktir aðdáendur borgarstjórnarmeirihlutans í Reykjavík en vinna samt meðvitað eða ómeðvitað í anda hugsjóna núverandi meirihluta.

Verkefni sem átti að klára á 15 árum er varla hafið þegar bráðum þriðjungur tímans er liðinn. Ekkert bólar á mikilvægum innviðaframkvæmdum eins og bættri stýringu umferðarljósa eða mislægum gatnamótum á mótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar.

Keldnalandið afhent Betri samgöngum ohf.

Ríkið afhenti BS eitt verðmætasta landsvæðið í borginni, Keldnalandið og Keldnaholt, um 116 hektara. Matsmenn ríkisins töldu landið 15 milljarða virði. Nú hefur verið viðurkennt að það er miklu verðmætara, en andvirðið fer í hítina við fyrirhugaða framkvæmd samgöngusáttmálans.

Hlutverk BS er að ná sem mestum hagnaði út úr Keldnalandinu. Ekki er tekið tillit til þess hvað sé skipulagslega best fyrir Reykjavík og íbúa borgarinnar heldur á þetta allt að þjóna stefnumörkun um þétta byggð, nýjustu hugmyndir um bílastæðahús og strætó sem treyst er á að flestir nýti.

Bráðaaðgerðir nauðsynlegar

Endurskoða þarf samgöngusáttmálann frá grunni, ekki eingöngu lengja í verkefninu og láta borgarbúa kveljast meira og lengur.

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins er einhuga í að vinna gegn þeim alvarlegu ágöllum sem eru á hugmyndum meirihluta borgarstjórnar í samgöngu- og skipulagsmálum. Áhugaverðar hugmyndir liggja fyrir um hvernig bæta má samgöngumál til skemmri og lengri tíma, en kynning á þeim bíður annarrar greinar. Við látum ekki góðlátlegt grín Heimdallar um dauða Reykjavíkur og útför í Tjarnarbíói nýlega verða að veruleika.

Höfundur er varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Höf.: Þorkell Sigurlaugsson