Biðlisti Marta segir að yfir 500 börn fái ekki leikskólapláss.
Biðlisti Marta segir að yfir 500 börn fái ekki leikskólapláss. — Morgunblaðið/Eggert
Alls bíða nú 1.327 börn eftir leikskólaplássi í Reykjavík. Gera má ráð fyrir því að yfir 500 börn fái ekki leikskólapláss í haust. Þetta segir Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið en hún lagði fram…

Alls bíða nú 1.327 börn eftir leikskólaplássi í Reykjavík. Gera má ráð fyrir því að yfir 500 börn fái ekki leikskólapláss í haust.

Þetta segir Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið en hún lagði fram fyrirspurn á fundi skóla- og frístundaráðs og fékk svör við henni.

„Staðan er ekki betri en hún var í fyrra og er ekki að lagast þrátt fyrir að kjörtímabilið sé að verða hálfnað. Því var lofað að öll börn frá 12 mánaða aldri kæmust inn á leikskóla. Þannig að það gengur mjög erfiðlega og seint að efna það loforð þegar við erum á hverju einasta ári með þetta langa biðlista,“ segir Marta. Hún segir að rúmlega 100 börn bætist við á biðlista eftir leikskóla í hverjum mánuði og að gera megi ráð fyrir að yfir 500 börn komist ekki inn í leikskóla í haust. Um 1.400 leikskólabörn munu ganga í grunnskóla í haust.

„Þá losna þessi 1.400 pláss en á móti kemur að á hverjum einasta mánuði eru rúmlega 100 börn að bætast við biðlistann. Þannig að staðan í haust verður sú að börnin verða að minnsta kosti 500 á biðlistanum, jafnvel fleiri, sem þá fá ekki leikskólapláss,“ segir hún.