Tvö stig til viðbótar hafa verið dregin af Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fyrir að brjóta reglur deildarinnar um fjárhagslega háttvísi. Everton fékk 10 stiga refsingu í nóvember en hún var lækkuð niður í sex stig eftir áfrýjun
Tvö stig til viðbótar hafa verið dregin af Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fyrir að brjóta reglur deildarinnar um fjárhagslega háttvísi. Everton fékk 10 stiga refsingu í nóvember en hún var lækkuð niður í sex stig eftir áfrýjun. Nú hefur tveimur stigum verið bætt við frádráttinn sem er þá samtals átta stig eins og staðan er núna. Þetta þýðir að Everton er með 27 stig í sextánda sæti deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti.