Eldgos Smám saman er að draga úr virkni eldgossins á Reykjanesskaga, en á sama tíma safnast kvika saman undir Svartsengi sem veldur landrisi.
Eldgos Smám saman er að draga úr virkni eldgossins á Reykjanesskaga, en á sama tíma safnast kvika saman undir Svartsengi sem veldur landrisi. — Morgunblaðið/Hörður Kristleifsson
„Það er að sjá eins og gosið sé smám saman að lognast út af en kvika haldi áfram að safnast fyrir undir Svartsengi. Það er líklegasta þróunin, þetta lítur þannig út eins og er,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga …

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

„Það er að sjá eins og gosið sé smám saman að lognast út af en kvika haldi áfram að safnast fyrir undir Svartsengi. Það er líklegasta þróunin, þetta lítur þannig út eins og er,“ segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við Morgunblaðið, spurður um stöðu mála á gosstöðvunum á Reykjanesskaga.

Hættumat Veðurstofunnar á gosstöðvunum er óbreytt en landris heldur áfram undir Svartsengi og kvikuflæði er stöðugt. Þrátt fyrir að dregið hafi úr krafti eldgossins eru ekki merki um að heildarkvikuflæði frá dýpi sé að minnka.

Benedikt segir að fyrst landris sé að aukast þá megi búast við að ástandið verði áfram svipað og verið hefur og langlíklegast að kvika muni halda áfram að koma upp á sömu slóðum og verið hefur, enda rof þar í jarðskorpunni. Hraði landrissins í Svartsengi hefur aukist undanfarna viku á sama tíma og dregið hefur úr krafti eldgossins sem gefur til kynna að megnið af kvikunni safnist þar saman.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson