Mark Katrín Björnsdóttir skoraði seinna mark Íslands í gær.
Mark Katrín Björnsdóttir skoraði seinna mark Íslands í gær. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Ísland beið lægri hlut fyrir Kasakstan, 7:2, í 2. deild A á heimsmeistaramótinu í íshokkíi kvenna þegar liðin mættust í Andorra í gær. Laura-Ann Murphy og Katrín Björnsdóttir skoruðu mörk Íslands. Íslenska liðið er því með þrjú stig eftir einn sigur og tvö töp í fyrstu þremur leikjum sínum

Ísland beið lægri hlut fyrir Kasakstan, 7:2, í 2. deild A á heimsmeistaramótinu í íshokkíi kvenna þegar liðin mættust í Andorra í gær. Laura-Ann Murphy og Katrín Björnsdóttir skoruðu mörk Íslands. Íslenska liðið er því með þrjú stig eftir einn sigur og tvö töp í fyrstu þremur leikjum sínum. Ísland mætir Mexíkó í dag og svo Taívan í lokaumferðinni á laugardaginn. Kasakstan og Spánn virðast í sérflokki í deildinni og eru bæði með fullt hús stiga.