Ólafur Kristófer Helgason
Ólafur Kristófer Helgason
Ólafur Kristófer Helgason, markvörður Fylkis í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til loka ársins 2027. Fyrri samningur Ólafs Kristófers átti að renna út í lok þessa árs en hann hefur verið aðalmarkvörður…

Ólafur Kristófer Helgason, markvörður Fylkis í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélagið sem gildir til loka ársins 2027. Fyrri samningur Ólafs Kristófers átti að renna út í lok þessa árs en hann hefur verið aðalmarkvörður Fylkis undanfarin tvö tímabil og er lykilmaður liðsins. Ólafur Kristófer er 21 árs en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 34 leiki í efstu deild og 22 leiki í þeirri næstefstu ásamt því að spila 18 leiki fyrir venslafélagið Elliða í fjórðu efstu deild. Hann er hluti af U21-árs landsliði Íslands.