Fólkið Verkstjórar hafa þungar áhyggjur af afdrifum starfsfólksins.
Fólkið Verkstjórar hafa þungar áhyggjur af afdrifum starfsfólksins. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Endurskipulagning er hafin á starfsemi Múlalundar, vinnustofu SÍBS, í breyttu umhverfi. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, formaður stjórnar SÍBS. Um reksturinn verður stofnað félag og ráðgast verður við færan rekstrarmann

Endurskipulagning er hafin á starfsemi Múlalundar, vinnustofu SÍBS, í breyttu umhverfi. Þetta segir Sveinn Guðmundsson, formaður stjórnar SÍBS. Um reksturinn verður stofnað félag og ráðgast verður við færan rekstrarmann.

Verkstjórar á Múlalundi hafa þungar áhyggjur af afdrifum starfsfólks og segja ferlið, sem leitt er af ráðgjöfum Vinnumálastofnunar, ganga á ógnarhraða en deildarstjóri á ráðgjafar- og vinnumiðlunarsviði stofnunarinnar segir að haft verði að leiðarljósi að finna fólki fjölbreytt störf með áherslu á starfsþróun.

Forstjóri fyrirtækis sem sækist eftir starfskröftum af Múlalundi segir afskaplega sorglegt að verið sé að loka vinnustofunni og stór viðskiptavinur Múlalundar mun sakna starfseminnar. » 20