Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er óbrotin og fór ekki úr axlarlið í leiknum gegn Þýskalandi í Aachen í fyrradag. Morgunblaðið hefur fengið þetta staðfest en brotið var gróflega á Sveindísi eftir hálftíma leik þannig að hún þurfti að fara af velli
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er óbrotin og fór ekki úr axlarlið í leiknum gegn Þýskalandi í Aachen í fyrradag. Morgunblaðið hefur fengið þetta staðfest en brotið var gróflega á Sveindísi eftir hálftíma leik þannig að hún þurfti að fara af velli. Samherji hennar hjá Wolfsburg í Þýskalandi Kathrin-Julia Hendrich var þar að verki. Sveindís þarf þó að fara í frekari myndatökur vegna áverkanna.