Frá áramótum hafa um 460 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi.
Frá áramótum hafa um 460 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi. — Morgunblaðið/Eggert
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í mars metárið 2018

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 173 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í mars metárið 2018. Tvær af hverjum fimm brottförum voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta.

Flestar brottfarir í mars voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, 37.500 talsins, eða ríflega fimmtungur heildarbrottfara. Bretar voru í öðru sæti, um 34.200 eða fimmtungur brottfara (19,7%). Brottfarir Kínverja voru í þriðja sæti eða 5,0% af heild og Ítalir í því fjórða.

Frá áramótum hafa um 460 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 421 þúsund talsins. Um er að ræða 9,9% fjölgun milli ára. Samtals voru brottfarir á tímabilinu janúar til mars í ár um 95,8% af þeim brottförum sem mældust á sama tímabili metárið 2018.

Brottfarir Íslendinga voru um 56 þúsund í mars, 16.200 fleiri en í mars 2023. Hafa ber í huga að utanferðir Íslendinga í tengslum við páska voru í mars í ár en í apríl í fyrra. Frá áramótum hafa um 130 þúsund Íslendingar farið utan en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 120 þúsund.