Eftirpartí nefnist nýtt dansverk eftir Ásrúnu Magnús­dóttur unnið í náinni samvinnu við Forward Youth Company sem frumsýnt er í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. „Partíið er búið eða það er allavega alveg að klárast

Eftirpartí nefnist nýtt dansverk eftir Ásrúnu Magnús­dóttur unnið í náinni samvinnu við Forward Youth Company sem frumsýnt er í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20. „Partíið er búið eða það er allavega alveg að klárast. Æskan er líka búin eða svona næstum því – við höldum samt í hana. Klukkan er margt en það er samt ennþá gaman. Við ætlum ekki heim alveg strax. Þetta er okkar partí og við grátum ef við viljum. Það er allt í lagi af því að við erum með vinum okkar og þau mega sjá okkur gráta og þau hugga okkur og halda utan um okkur. Til þess eru vinir. Síðan förum við heim – þetta verður síðasti dansinn,“ segir í viðburðarkynningu.