Sólskin Það voru margir dagarnir í vetur sem hægt var að njóta útiveru.
Sólskin Það voru margir dagarnir í vetur sem hægt var að njóta útiveru. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Veturinn hefur verið sólríkur í Reykjavík. Þar mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 313,5 sem er 106,5 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Þetta er 4. sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga, en veturna 1947, 2023 og 1966 var sólríkara

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Veturinn hefur verið sólríkur í Reykjavík. Þar mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 313,5 sem er 106,5 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Þetta er 4. sólríkasti veturinn í Reykjavík frá upphafi mælinga, en veturna 1947, 2023 og 1966 var sólríkara.

Á Akureyri mældust sólskinsstundir vetrarins 134, sem er 15,4 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Þetta kemur fram í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar.

Svonefndur veðurstofuvetur nær til mánaðanna desember til mars og nú hefur vorið tekið við hjá Veðurstofunni. Veturinn 2023 til 2024 telst hafa verið nokkuð hagstæður. Það var tiltölulega hægviðrasamt og tíð góð. Illviðri voru með færra móti.

En það hefur verið fremur kalt og hiti var vel undir meðallagi um land allt. Veturinn var þurr og sólríkur suðvestanlands en það var úrkomusamara á norðanverðu landinu, þá sérstaklega í febrúar og mars.

Meðalhiti í Reykjavík í vetur var -0,1 stig og er það 0,9 stigum undir meðallagi sömu mánaða 1991 til 2020. Veturinn er í 85. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga í Reykjavík árið 1871. Á Akureyri var meðalhiti vetrarins -2,3 stig sem er 1,8 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri var veturinn í 101. sæti yfir hlýjustu vetur frá upphafi samfelldra mælinga á Akureyri 1881.

Veturinn var þurr í Reykjavík. Heildarúrkoma vetrarins var 276,3 millimetrar (mm) sem er 78% af meðalúrkomu áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældist heildarúrkoma í vetrarmánuðunum fjórum 237,5 mm sem er rétt umfram meðalúrkomu áranna 1991 til 2020.

Í Reykjavík voru alhvítir dagar í vetur 47, sem eru jafn margir og að meðaltali 1991 til 2020. Á Akureyri voru alhvítir dagar 86, 13 fleiri en að meðaltali 1991 til 2020.

Nýliðinn mars var sólríkur, þurr og tiltölulega hlýr á suðvestanverðu landinu. Það var kaldara og úrkomusamara á norðanverðu landinu. Norðaustlægar áttir voru ríkjandi stóran hluta mánaðarins. Töluverð snjóþyngsli voru á norðan- og austanverðu landinu í lok mánaðar, auk hvassviðris, sem ollu þónokkrum samgöngutruflunum. Nokkur fjöldi snjóflóða féll í þessum landshlutum, að því er fram kemur í tíðarfarsyfirlitinu.

Meðalhiti í Reykjavík í mars var 1,7 stig. Það er 0,5 stigum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,2 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhitinn -0,3 stig, 0,4 stigum undir meðallagi áranna 1991 til 2020 en 0,7 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Í Stykkishólmi var meðalhiti mánaðarins 0,2 stig.

Höf.: Sigtryggur Sigtryggsson