Sigursæll Leó Snæfeld Jónsson á Ömmu Don var besti barþjónninn.
Sigursæll Leó Snæfeld Jónsson á Ömmu Don var besti barþjónninn. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kokteilbarinn Amma Don, sem rekinn er samhliða hinum leyndardómsfulla veitingastað Óx við Laugaveg, sópaði að sér verðlaunum á barþjónakeppninni Bartenders Choice Awards sem haldin var í 14. sinn í Kaupmannahöfn á dögunum

Kokteilbarinn Amma Don, sem rekinn er samhliða hinum leyndardómsfulla veitingastað Óx við Laugaveg, sópaði að sér verðlaunum á barþjónakeppninni Bartenders Choice Awards sem haldin var í 14. sinn í Kaupmannahöfn á dögunum. Amma Don var valinn besti kokteilbarinn, besti nýi kokteilbarinn og þar þótti vera besta andrúmsloftið. Auk þess var Leó Snæfeld Jónsson valinn besti barþjónninn, annað árið í röð.

Þetta er í fimmta skipti sem Ísland tekur þátt í þessari virtu norrænu barþjónakeppni. Stór dómnefnd veitingamanna í hverju landi tilnefnir þá sem þykja hafa skarað fram úr í veitingabransanum á síðasta ári.

Aðrir verðlaunahafar voru Oto sem valinn var besti veitingastaðurinn, besti „signature“-kokteillinn var 3 Citrus Gimlet á Skál og Jungle fékk verðlaun í flokknum val fólksins. David Hood á Kjarval var verðlaunaður sem rísandi stjarna og Jónas Heiðarr fyrir störf að framþróun bransans. Þá þótti besta andrúmsloftið vera á Bingo. hdm@mbl.is