Það er margt í gangi hjá söngkonunni Diljá Pétursdóttur núna en hún er mest í að semja tónlist, er í námi og leikur í sjónvarpsseríunni Gestir. „Þetta eru svona rómantískir gamanþættir. Þetta er um stelpu og strák sem lenda í því að líkamar…

Það er margt í gangi hjá söngkonunni Diljá Pétursdóttur núna en hún er mest í að semja tónlist, er í námi og leikur í sjónvarpsseríunni Gestir. „Þetta eru svona rómantískir gamanþættir. Þetta er um stelpu og strák sem lenda í því að líkamar þeirra skiptast, eða þau vakna í röngum líkama,“ útskýrir Diljá. „Þetta er fyrsta sjónvarpsserían sem ég leik í. Það var gaman að prófa þetta. Það er draumur að vera leikkona, ég hef verið á námskeiðum en stefnan er sett á að fara í háskólanám í leiklist.“ Lestu meira á K100.is.