— Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Átta ára afmæli veitingastaðarins Sæta svínsins fór ekki fram hjá vegfarendum í Kvosinni í vikunni. Á miðvikudaginn var alvöruafmælisstemning á staðnum og einnig fyrir utan hann. Þar voru meðal annars þessir skemmtilegu flamingóar á vegum Pilkington …

Átta ára afmæli veitingastaðarins Sæta svínsins fór ekki fram hjá vegfarendum í Kvosinni í vikunni. Á miðvikudaginn var alvöruafmælisstemning á staðnum og einnig fyrir utan hann. Þar voru meðal annars þessir skemmtilegu flamingóar á vegum Pilkington props og vöktu þeir sannarlega athygli ungu kynslóðarinnar. Síðar um kvöldið var dragsýning með Gógó Starr og partíbingó með Siggu Kling.