Óvíst er hvort Þorsteinn Leó Gunnarsson, landsliðsmaðurinn ungi í handknattleik, leiki meira með Aftureldingu á þessu tímabili vegna meiðsla í öxl. Hann hefur verið frá í nokkrar vikur og var ekki með þegar Afturelding vann nauman sigur á Stjörnunni, 29:28, í fyrsta leik átta liða úrslitanna
Óvíst er hvort Þorsteinn Leó Gunnarsson, landsliðsmaðurinn ungi í handknattleik, leiki meira með Aftureldingu á þessu tímabili vegna meiðsla í öxl. Hann hefur verið frá í nokkrar vikur og var ekki með þegar Afturelding vann nauman sigur á Stjörnunni, 29:28, í fyrsta leik átta liða úrslitanna. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, sagði við handbolti.is að það gæti verið stutt í Þorstein en einnig gæti svo farið að hann yrði ekkert meira með liðinu.