DeAndre Kane
DeAndre Kane
DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands. Hann verður því ekki með í öðrum leik liðsins gegn Tindastóli í átta liða úrslitum Íslandsmótsins á mánudagskvöldið

DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, var í gær úrskurðaður í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands. Hann verður því ekki með í öðrum leik liðsins gegn Tindastóli í átta liða úrslitum Íslandsmótsins á mánudagskvöldið. Áður hafði KKÍ tilkynnt að Kane færi í tveggja leikja bann en sendi tilkynninguna ítrekað á rangt netfang.

Grindvíkingar sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem þeir lýstu yfir óánægju með vinnubrögð KKÍ en Kane hefði með réttu átt að taka út bannið áður en úrslitakeppnin hæfist.