Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir
Við eigum öll rétt á að fá að vera við sjálf og að upplifa hamingju og ánægju með hver við erum – líka transbörn og -ungmenni.

Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir

Ef það er einn hlutur sem ég ætti að nefna sem hefði getað aukið lífsgæði mín og hamingju sem barn og unglingur, þá væri það aðgangur að upplýsingum um transfólk, og sá stuðningur og þjónusta sem transteymi Barna- og unglingageðdeildar Landspítala veitir ungmennum nú.

Í minni barnæsku var nefnilega aldrei talað um hinsegin málefni og fékk ég engar upplýsingar né fræðslu um slíkt, hvorki í grunnskóla né framhaldsskóla. Það var líka lítið sem ekkert talað um þessi málefni heima fyrir, þó svo að t.d. bæri á góma umræður um homma og lesbíur.

Ég þurfti því að burðast með kynvitund sem samræmdist ekki þeirri sem mér var úthlutað við fæðingu frá því að ég man eftir mér, en það var öllum ljóst strax frá unga aldri að ég væri svo sannarlega ekki eins og strákarnir.

Kyntjáning mín var alltaf óhefðbundin og voru ein fyrstu uppnefni sem ég man eftir að vera kölluð „kelling“. Þegar var komið á kynþroska þá var því gjarnan hvíslað á skólagöngunum að ég væri örugglega hommi og fékk ég að heyra ýmsar sögur af því úr öllum áttum að ég væri komin út úr skápnum sem hommi þrátt fyrir að hafa aldrei upplifað mig sem slíkan.

Það hefði í rauninni verið mun auðveldara að vera bara hommi en að koma út úr skápnum sem trans og það að vera transmanneskja í samfélaginu er ekki auðveld vegferð. En ég er ekki hommi og hef aldrei upplifað mig á þann hátt.

Ég sem unglingur vissi strax muninn á því hvernig ég upplifði kyn mitt og hverjum ég laðaðist að og til hvers konar sambanda ég vildi stofna. Mér fannst það aldrei passa að vera strákur, hvað þá að vera strákur í sambandi með öðru fólki.

En þrátt fyrir að hafa nær engan stuðning eða upplýsingar um transmálefni þá tók ég samt mín fyrstu skref út úr skápnum sem trans rétt rúmlega 17 ára gömul, eða fyrir rúmum 15 árum. Það var stærsta gæfuskref sem ég hef stigið á lífsleiðinni.

Vinir og vandamenn hafa ætíð haft orð á því að ég umbreyttist í raun þar sem ég fór úr því að vera feimin, óörugg manneskja sem hélt sig alltaf til baka, yfir í það að verða glaðlynd, hamingjusöm og virkur þátttakandi í félags- og fjölskyldulífi mínu.

En það er ekki þar með sagt að ég sé alltaf rosalega hress sama hvað. Mér finnst alveg líka stundum erfitt að vakna á morgnana og upplifa smá bugun í hinu daglega amstri. En ég get mun betur tekist á við lífið og þær áskoranir sem því fylgja eftir að ég tók þá ákvörðun að vera ég sjálf. Ég forðast ekki lengur spegla þegar ég fer fram úr eða klæði mig í föt sem fela líkama minn gjörsamlega til að gera mig eins kynlausa og mögulegt er.

Í dag er ég ánægð með bæði útlit mitt og hver ég er sem manneskja og er stolt dóttir, systir, frænka og vinkona. Ég upplifi sterka samstöðu með öðrum konum og þær með mér og ég tek virkan þátt í jafnréttisbaráttu gegn ofbeldi og mismunun ýmissa hópa í samfélaginu. Ég lifi lífi sem er innihaldsríkt og hef getað menntað mig og starfað við það sem mér þykir skemmtilegt og gagnlegt fyrir samfélagið. Ég á maka, gæludýr og hef gott fólk í kringum mig sem þykir vænt um mig og styður mig í öllu sem ég tek mér fyrir hendur.

Þetta ættu ekki að vera forréttindi, heldur er þetta eitthvað sem við eigum öll rétt á að upplifa. Þess vegna er það mikilvægt að við stöndum öll á bak við yngri kynslóðir og leyfum þeim að vera þau sjálf, í stað þess að kveða niður fjölbreytileika og bæla niður kynhneigð eða kynvitund barna og unglinga.

Við eigum ekki að endurtaka mistök fyrri kynslóða þar sem hinseginleiki fólks var talinn óæskilegur og smitandi. Eitthvað sem fólk þurfti að skammast sín fyrir. Þvert á móti eigum við að fagna honum og leyfa fólki að blómstra, nákvæmlega eins og það er. Við eigum öll að hafa frelsi til að vera við sjálf, og eigum að hlusta á raddir og þarfir þeirra sem þurfa mest á stuðning að halda – þar með talið transbarna og -unglinga.

Því annars endurtökum við bara sömu mistökin og áður, okkur öllum til ógæfu.

Höfundur var eitt sinn transbarn.

Höf.: Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir