Bandaríska knattspyrnukonan Ruby Diodati er komin til liðs við Víking í Reykjavík, bikarmeistarana frá 2023 og nýliða í Bestu deildinni á komandi keppnistímabili. Diodati er 23 ára gömul, leikur sem varnarmaður og spilaði með háskólaliði Michigan…
Bandaríska knattspyrnukonan Ruby Diodati er komin til liðs við Víking í Reykjavík, bikarmeistarana frá 2023 og nýliða í Bestu deildinni á komandi keppnistímabili. Diodati er 23 ára gömul, leikur sem varnarmaður og spilaði með háskólaliði Michigan State en lék síðan eitt ár með Gintra í Litháen þar sem hún varð meistari og lék með liðinu í forkeppni Meistaradeildarinnar. Víkingur mætir Stjörnunni í fyrstu umferðinni 22. apríl.