Sara Lind Guðbergsdóttir hefur tímabundið verið sett í embætti orkumálastjóra og mun hún gegna starfinu til 2. júní nk. Þessi skipan mála var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun. Sara Lind er lögfræðingur að mennt og hefur m.a
Sara Lind Guðbergsdóttir hefur tímabundið verið sett í embætti orkumálastjóra og mun hún gegna starfinu til 2. júní nk. Þessi skipan mála var kynnt á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Sara Lind er lögfræðingur að mennt og hefur m.a. starfað hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og sat í samninganefnd ríkisins á þeim tíma. Þá hefur hún starfað hjá Ríkiskaupum, síðast sem settur forstjóri stofnunarinnar.
Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri er komin í leyfi frá störfum vegna framboðs hennar til embættis forseta Íslands, vegna kosninganna 1. júní næstkomandi.