Íslandsmet Anton Sveinn McKee fagnar metinu í 100 metrunum. Hinn efnilegi Snorri Dagur Einarsson fylgdi honum vel eftir í sundinu.
Íslandsmet Anton Sveinn McKee fagnar metinu í 100 metrunum. Hinn efnilegi Snorri Dagur Einarsson fylgdi honum vel eftir í sundinu. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Anton Sveinn McKee gerði sér lítið fyrir og sló fimm ára gamalt Íslandsmet sitt í 100 metra bringusundi á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug í Laugardalslauginni í gær. Anton vann greinina á 1:00,21 mínútu en metið sem hann setti í Gwangju í Suður-Kóreu árið 2019 var 1:00,32 mínútur

Sund

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Anton Sveinn McKee gerði sér lítið fyrir og sló fimm ára gamalt Íslandsmet sitt í 100 metra bringusundi á Íslandsmeistaramótinu í 50 metra laug í Laugardalslauginni í gær.

Anton vann greinina á 1:00,21 mínútu en metið sem hann setti í Gwangju í Suður-Kóreu árið 2019 var 1:00,32 mínútur.

Snorri Dagur Einarsson veitti Antoni keppni í úrslitasundinu og varð annar á 1:03,04 mínútum.

Anton keppir í sinni aðalgrein, 200 metra bringusundinu, í Laugardalslauginni síðdegis á morgun en hann verður jafnframt með í 50 metra bringusundinu í dag.

Anton er enn sem komið er eini Íslendingurinn sem hefur tryggt sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í París í sumar.

Snæfríður Sól Jórunnardóttir, fremsta sundkona landsins, vann 50 metra skriðsund í kjölfarið á 25,62 sekúndum en Íslandsmetið í greininni, sem Sarah Blake Bateman setti árið 2012, er 25,24 sekúndur.

Snæfríður keppir í 200 metra skriðsundi í dag og freistar þess að ná lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana.

Unglingamet hjá Birki

Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH sló eigið unglingamet og náði lágmarki fyrir Evrópumót unglinga þegar hann sigraði í 100 metra flugsundi á 55,22 sekúndum. Róbert Ísak Jónsson, afreksmaður úr röðum fatlaðra, krækti í bronsverðlaun á 59,65 sekúndum.

Guðmundur Leó Rafnsson úr ÍRB náði lágmarki fyrir Evrópumót unglinga þegar hann sigraði með yfirburðum í 200 metra baksundi á 2:04,10 mínútum. Guðmundur hefur nú unnið þessa grein sjö sinnum í röð á Íslandsmótunum í 50 og 25 metra laug.

Vala Dís Cicero úr SH sigraði í 400 metra skriðsundi kvenna á 4:24,28 mínútum og náði lágmarki fyrir EM unglinga.

Bættu met um 16 sekúndur

Sveit Breiðabliks-1 setti nýtt unglingamet í 4x200 metra skriðsundi kvenna þegar hún sigraði á 8:35,46 mínútum. Blikastúlkurnar bættu tveggja ára gamalt met SH um heilar 16 sekúndur.

Veigar Hrafn Sigþórsson úr SH sigraði í 400 metra skriðsundi karla á 4:09,44 mínútum.

Ylfa Lind Kristmannsdóttir úr Ármanni sigraði í 50 metra baksundi kvenna á 30,44 sekúndum.

Nadja Djurovic úr Breiðabliki sigraði í 200 metra flugsundi kvenna á 2:29,13 mínútum.

Eva Margrét Falsdóttir úr ÍRB sigraði í 200 metra bringusundi kvenna á 2:36,75 mínútum.

Einar Margeir Ágústsson úr ÍA sigraði í 50 metra skriðsundi karla á 23,78 sekúndum.

Sveit SH sigraði í 4x200 metra skriðsundi á 7:49,10 mínútum.