Höfði Malbikunarstöðin er dótturfyrirtæki Reykjavíkurborgar.
Höfði Malbikunarstöðin er dótturfyrirtæki Reykjavíkurborgar. — Morgunblaðið/sisi
Malbikunarstöðin Höfði á Sævarhöfða 6-10 í Reykjavík er enn að taka á móti úrgangi til endurvinnslu þrátt fyrir að vera ekki með starfsleyfi. Þetta fengu Samtök iðnaðarins (SI) staðfest eftir að kvartað var nýverið til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur

Malbikunarstöðin Höfði á Sævarhöfða 6-10 í Reykjavík er enn að taka á móti úrgangi til endurvinnslu þrátt fyrir að vera ekki með starfsleyfi. Þetta fengu Samtök iðnaðarins (SI) staðfest eftir að kvartað var nýverið til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Fengu fulltrúar eftirlitsins staðfestingu á þessu með heimsókn til Höfða.

Fyrirtækið er í eigu Reykjavíkurborgar og heldur starfsemi áfram þrátt fyrir að heilbrigðisnefnd Reykjavíkur hafi hafnað umsókn þess um tímabundið starfsleyfi. Óheimilt er að hefja starfsleyfisskylda starfsemi nema starfsleyfi liggi fyrir.

Malbikunarstöðin lagði raunar inn umsóknina 3. nóvember síðastliðinn eða sama dag og frétt birtist í Morgunblaðinu. Var þá sótt um tímabundið leyfi fyrir móttöku á úrgangi til endurvinnslu.

SI hafa ítrekað sent ábendingar um háttsemina til heilbrigðiseftirlitsins og Umhverfisstofnunar og bent á að önnur fyrirtæki í einkaeigu sem starfa á þessum samkeppnismarkaði hafi sætt ströngu eftirliti sveitarfélaga og Umhverfisstofnunar undanfarin ár vegna sambærilegrar starfsemi sem snýr að lögum um meðhöndlun úrgangs.

„Það er bara ekki boðlegt að fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar hagi sér með þessum hætti,“ segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins.

„Við lögðum inn kvörtun þegar ljóst var að starfsleyfisskyldri starfsemi væri haldið áfram þrátt fyrir synjun um starfsleyfi. Enn og aftur er komin upp mjög vond staða út frá eignarhaldi þessa fyrirtækis enda skapar það tortryggni. Borgin sættir sig væntanlega ekki við að önnur fyrirtæki stundi atvinnurekstur með þessum hætti, þ.e. án starfsleyfa.“ kris@mbl.is