Robert Downey Jr.
Robert Downey Jr.
Robert Downey Jr. segist glaður myndu leika hlutverk Iron Man á ný ef það byðist. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Esquire. Viðtalið veitti hann eftir að hann í seinasta mánuði hlaut Óskarsverðlaunin fyrir bestan leik í aukahlutverki í…

Robert Downey Jr. segist glaður myndu leika hlutverk Iron Man á ný ef það byðist. Þetta kemur fram í viðtali við tímaritið Esquire. Viðtalið veitti hann eftir að hann í seinasta mánuði hlaut Óskarsverðlaunin fyrir bestan leik í aukahlutverki í Oppenheimer. Leikarinn lék fyrst Iron Man í samnefndri kvikmynd 2008 og reglulega næstu 11 árin eða þar til Iron Man mætti ofjarli sínum í Avengers: Endgame (2019). Þrátt fyrir að Iron Man hafi látið lífið í þeirri mynd hafa reglulega heyrst sögusagnir þess efnis að stjórnendur hjá Marvel hefðu mikinn hug á því að fá Downey til að snúa aftur á hvíta tjaldið sem Iron Man, ekki síst til að auka vinsældir Marvel-mynda á ný.