Ísland er í þriðja sæti í röð Evrópulanda sem voru með lægstu dánartíðni í umferðinni á árinu 2022 samkvæmt nýjum samanburði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, á endanlegum tölum yfir banaslys á vegum í Evrópu.
Banaslysum í umferðinni í löndum Evrópu fjölgaði á árinu 2022 og létu alls 20.653 lífið í umferðarslyslum í 31 Evrópuríki sem samanburðurinn nær til eða að jafnaði 46 á hverja milljón íbúa.
Eurostat ber saman fjölda látinna í umferðarslysum milli landa með því að reikna banaslysatíðnina á hverja milljón íbúa. Fjöldi látinna í umferðinni var hvergi meiri en í Rúmeníu á árinu 2022 eða 86 á hverja milljón íbúa, í Búlgaríu var hlutfallið 78 af hverjum milljón íbúum og í Króatíu voru banaslysin 71.
Tíðni banaslysa var afar misjöfn eftir löndum. Lægst var tíðnin í Noregi 21 á hverja milljón íbúa, í Svíþjóð 22 á hverja milljón og Ísland er í þriðja sæti. Hér á landi létu níu einstaklingar lífið í umferðarslysum á árinu 2022 sem svarar til 24 banaslysa á milljón íbúa í samanburði Eurostat.
Tíðni banaslysa hefur verið sveiflukennd á milli ára á Íslandi en nýjar tölur Eurostat yfir slysatíðnina á Íslandi á árinu 2022 eru þó nánast þær sömu og á árinu 2021 þegar banaslysin hér á landi voru 24 á hverja milljón íbúa og tíðnin var lægri á árinu 2020 eða 22.
Átta einstaklingar létust í umferðinni hér á landi í fyrra en það sem af er yfirstandandi ári hefur orðið mikill viðsnúningur til hins verra og átta látist í umferðarslysum frá áramótum.
Umferðaröryggi í Evrópu
Banaslysum fjölgaði.
Tíðni banaslysa í umferðinni á árinu 2022 var lítið eitt meiri í Danmörku en hér á landi eða 26 á hverja milljón íbúa.
31 á hverja milljón fórst í umferðinni á Írlandi, 33 í Þýskalandi og 48 í Frakklandi.
Banaslysum í Evrópu fækkaði á árinu 2020 en hefur svo fjölgað tvö ár í röð.