Þór frá Akureyri tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitum umspils um laust sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik með því að leggja Hörð að velli, 24:22, í oddaleik í undanúrslitum á Ísafirði. Í úrslitaeinvíginu mætir Þór liði Fjölnis
Þór frá Akureyri tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitum umspils um laust sæti í úrvalsdeild karla í handknattleik með því að leggja Hörð að velli, 24:22, í oddaleik í undanúrslitum á Ísafirði. Í úrslitaeinvíginu mætir Þór liði Fjölnis.
Brynjar Hólm Grétarsson fór fyrir Þór í leiknum í gærkvöldi er hann skoraði 13 mörk, rúmlega helming marka liðsins. Jhonatan Santos var markahæstur hjá Herði með sjö mörk.