Akureyri Ríkjandi Íslandsmeistarar KA fagna í gærkvöldi. Fram undan er oddaleikur gegn ríkjandi bikar- og deildarmeisturum Hamars.
Akureyri Ríkjandi Íslandsmeistarar KA fagna í gærkvöldi. Fram undan er oddaleikur gegn ríkjandi bikar- og deildarmeisturum Hamars. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
KA tryggði sér oddaleik í Hveragerði með því að leggja Hamar að velli, 3:2, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í blaki á Akureyri í gærkvöldi. Tvo sigra þarf til þess að tryggja sér sæti í úrslitum og ræðst það því í oddaleik hvort liðið fer alla leið í úrslitaeinvígið

KA tryggði sér oddaleik í Hveragerði með því að leggja Hamar að velli, 3:2, í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í blaki á Akureyri í gærkvöldi.

Tvo sigra þarf til þess að tryggja sér sæti í úrslitum og ræðst það því í oddaleik hvort liðið fer alla leið í úrslitaeinvígið.

KA vann fyrstu hrinu 25:23 og Hamar svaraði í sömu mynt í annarri hrinu. Hamar vann þriðju hrinu nokkuð örugglega, 19:25, áður en KA knúði fram oddahrinu með því að vinna þá fjórðu 25:20.

Eftir geysilega spennu í oddahrinu sem virtist engan enda ætla að taka höfðu Akureyringar betur, 22:20, og tryggðu sér sigurinn.

Stigahæstir í liði KA voru Miguel Mateo Castrillo með 25 stig og Óscar Fernández Celis með 21 stig.

Hjá Hamri var Tomek Leik stigahæstur með 21 stig. Rafal Berwald bætti við 17 stigum og Hafsteinn Valdimarsson 15 stigum.