— Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Starfsmenn ÍAV vinna þessa dagana að því að loka ytra byrðinu á nýrri knatthöll Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði. Búið er að reisa grind hússins og sperrur og nú er krani notaður þegar bitar í þakið eru lagðir ofan á þær

Starfsmenn ÍAV vinna þessa dagana að því að loka ytra byrðinu á nýrri knatthöll Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði. Búið er að reisa grind hússins og sperrur og nú er krani notaður þegar bitar í þakið eru lagðir ofan á þær. Þannig er verkið tekið skref fyrir skref og gangurinn er góður. Samningum samkvæmt á verktaki að ljúka framkvæmdum í lok nóvember næstkomandi svo vænst er að strax á nýju ári megi hefja knattspyrnuæfingar í húsinu, sem er rúmir 10.000 fermetrar að flatarmáli. Þá er eftir að setja upp áhorfendabekki og ljúka framkvæmdum við þjónustubyggingu sem fylgir knatthöllinni, sem ætti að vera klárt þegar kemur fram á næsta ár.

„Tilkoma knatthallarirnnar verður í raun algjör bylting fyrir allt íþróttastarf Hauka,“ segir Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Hauka í samtali við Morgunblaðið. „Þetta verkefni er nauðsynleg innviðauppbygging af hálfu Hafnarfjarðarbæjar. Haukar þjóna til dæmis Völlum, Skarðshlíð og Hamranesi; hverfum sem eru í hraðri uppbyggingu og íbúum þar fjölgar mikið. Slíkt kallar eðlilega á að góð íþróttaaðstaða sé til staðar. Einnig verða umhverfis knattvöllinn í húsinu göngubrautir sem nýst geta til dæmis eldra fólki sem vill vera í hreyfingu.“ sbs@mbl.is