Elon Musk
Elon Musk
Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla áformar að segja upp 10% starfsmanna sinna, sem eru alls um 140 þúsund víða um heim. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Elon Musk forstjóri fyrirtækisins sendi til starfsmanna

Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla áformar að segja upp 10% starfsmanna sinna, sem eru alls um 140 þúsund víða um heim. Þetta kemur fram í tölvupósti sem Elon Musk forstjóri fyrirtækisins sendi til starfsmanna. Þar sagði Musk að aðgerðirnar væru nauðsynlegar vegna þess að ör vöxtur fyrirtækisins hefði leitt til þess að starfsfólki hefði fjölgað um of. „Þetta mun gera okkur kleift að vera straumlínulöguð, framsækin og hungruð,“ sagði Musk í póstinum.