10 Andri Lucas Guðjohnsen er markahæsti leikmaður Lyngby.
10 Andri Lucas Guðjohnsen er markahæsti leikmaður Lyngby. — Ljósmynd/Szilvia Micheller
Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í úrvalsliði umferðarinnar í 25. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Það er deildin sjálf sem velur liðið og birtir á heimasíðu sinni og Andri er þar í fremstu víglínu ásamt Andreas Cornelius, framherja Köbenhavn

Andri Lucas Guðjohnsen, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í úrvalsliði umferðarinnar í 25. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar. Það er deildin sjálf sem velur liðið og birtir á heimasíðu sinni og Andri er þar í fremstu víglínu ásamt Andreas Cornelius, framherja Köbenhavn.

Andri skoraði mark Lyngby þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Hvidovre um helgina. Það var hans 10. mark í 21 leik með liðinu í deildinni í vetur.