Tryggingastofnun (TR) og lífeyrissjóðir hafa gengið frá samkomulagi um stafræna miðlun upplýsinga um lífeyrisréttindi viðskiptavina sem hafa sótt um lífeyrisgreiðslur til TR. Með þessu móti er hægt að fækka þeim skrefum sem umsækjandi, TR og…

Tryggingastofnun (TR) og lífeyrissjóðir hafa gengið frá samkomulagi um stafræna miðlun upplýsinga um lífeyrisréttindi viðskiptavina sem hafa sótt um lífeyrisgreiðslur til TR. Með þessu móti er hægt að fækka þeim skrefum sem umsækjandi, TR og lífeyrissjóðir þurfa að taka þegar sótt er um greiðslur frá TR. Þannig mun umsóknaferillinn verða einfaldari fyrir umsækjendur.

Í samkomulaginu sem lífeyrissjóðir og TR undirrita er fjallað ítarlega um miðlun persónuupplýsinga, ábyrgð og skyldur aðila í tengslum við þá vinnslu og þjónustu sem samkomulagið tekur til.