Ríkjandi bikarmeistarar Aftureldingar tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í blaki með því hafa örugglega betur gegn HK, 3:0, í Digranesi. Mosfellingar unnu þar með einvígið 2:0
Ríkjandi bikarmeistarar Aftureldingar tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í blaki með því hafa örugglega betur gegn HK, 3:0, í Digranesi. Mosfellingar unnu þar með einvígið 2:0.
Síðar um kvöldið tryggðu ríkjandi Íslandsmeistarar KA sæti sitt í úrslitum með 3:1-sigri á Völsungi á Húsavík. KA vann einvígi sitt því sömuleiðis 2:0 og Íslandsmeistararnir og bikarmeistararnir mætast í úrslitum.