Anna Fanney Kristinsdóttir sigurvegari Idol sagðist vera stolt af sjálfri sér fyrir að hafa ákveðið að taka þátt í keppninni. Stikla sem fór sem eldur í sinu um veraldarvefinn í upphafi þáttanna sýnir feimna stúlku með stórkostlega rödd sem vakti fljótt athygli fólks

Anna Fanney Kristinsdóttir sigurvegari Idol sagðist vera stolt af sjálfri sér fyrir að hafa ákveðið að taka þátt í keppninni. Stikla sem fór sem eldur í sinu um veraldarvefinn í upphafi þáttanna sýnir feimna stúlku með stórkostlega rödd sem vakti fljótt athygli fólks. „Í fyrstu prufunni var ég með lokuð augu allan tímann því ég gat ekki horft á fólkið sem var að dæma mig,“ segir Anna Fanney og hlær. „En nú hefur það breyst.“ Anna Fanney var hrædd í fyrstu við að fara út í þetta en sér ekki eftir því í dag. „Ég er mjög stolt af sjálfri mér.“ Lestu meira á K100.is.