Alþingi Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm í gær.
Alþingi Mannréttindadómstóll Evrópu kvað upp dóm í gær. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Íslenska ríkið braut gegn rétti borgara til frjálsra kosninga sem og gegn meginreglu um skilvirk réttarúrræði í kosningunum til Alþingis árið 2021. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu en dómurinn var kveðinn upp í gær

Íslenska ríkið braut gegn rétti borgara til frjálsra kosninga sem og gegn meginreglu um skilvirk réttarúrræði í kosningunum til Alþingis árið 2021. Þetta er niðurstaða Mannréttindadómstóls Evrópu en dómurinn var kveðinn upp í gær.

Í dómnum kemur fram að íslenska ríkið hafi brotið gegn 3. grein 1. viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu um réttinn til frjálsra kosninga og gegn 13. gr. Mannréttindasáttmálans um réttinn til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns. Málið á rætur sínar í alþingiskosningum árið 2021, en eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi á sunnudegi urðu talsverðar sviptingar á úthlutun jöfnunarmanna. Þeir Guðmundur Gunnarsson og Magnús Davíð Norðdahl, báðir frambjóðendur í Norðvesturkjördæmi, duttu út. Gagnrýndu þeir meðal annars að kjörgögn hefðu aðeins verið læst í salnum á milli talninga, en að salurinn hefði ekki verið innsiglaður, líkt og gert var í öðrum kjördæmum. Þeir kærðu framkvæmd kosninganna eftir að seinni talning atkvæða var látin standa. Var málið bæði kært til lögreglu og kjörbréfanefndar Alþingis. Lögreglan vísaði málinu að lokum frá, en niðurstaða undirbúningskjörbréfanefndar var að þrátt fyrir talsverða ágalla væri ekkert sem benti til að þetta hefði haft áhrif á úrslit kosninganna. Því skyldu úrslitin standa.

Að mati dómsins var kjörbréfanefndin hlutlæg og sanngjörn í sinni athugun en afgreiðsla alþingismanna var talin pólitísk þar sem þeim var fengið vald til að ráða örlögum sínum sjálfir. oskar@mbl.is