30 ára Sæbjörn er Akureyringur en býr í Kópavogi. Hann er með stúdentspróf frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og starfar sem íþróttafréttamaður á Fótbolti.net. Áhugamálin eru íþróttir, boltaíþróttirnar eru númer eitt en aðrar íþróttagreinar fylgja þar á eftir

30 ára Sæbjörn er Akureyringur en býr í Kópavogi. Hann er með stúdentspróf frá Verkmenntaskólanum á Akureyri og starfar sem íþróttafréttamaður á Fótbolti.net. Áhugamálin eru íþróttir, boltaíþróttirnar eru númer eitt en aðrar íþróttagreinar fylgja þar á eftir.


Fjölskyldan Systkini Sæbjörns eru sjö: Kristína Ösp, Þórður Björn, Þóranna Lilja, Heiða Björk, Birgitta Ösp, Júlíanna Ösp og Vilhjálmur Þór. Foreldrar Sæbjörns eru Anke Maria Steinke, f. 1960, kennari við VMA, og Þórbergur Torfason, f. 1954, sjómaður.